Húsið

Hver tala á sér heimild.

Allt hér er dregið úr sniðteikningum og vinnuteikningum MM Statyba, orkulíkani framleiðandans og festingarlýsingu byggingarstjóra, og teiknað upp úr einu líkani. Engin tala er slegin inn eftir minni.

8,15 × 5,15
Útmál í metrum
34,96 m²
Innra gólfflatarmál
2,94 til 3,12
Lofthæð í metrum
B
Orkuflokkur
+3,555 +3,755 +0,355 GÓLF ±0,000 PLATA 3.200 3.400 2.940 3.119 355 150 4.600 5.150 5.300 halli 3,9 % · 1:26 · 2,2° 1 þak 2 veggur 3 gólf 4 plata
Snið A-A · lofthæðir, þakhalli og plata
Málin
Útmál eftir burðargrind
8.000 × 5.000 mm
Fullfrágengið útmál
8.150 × 5.150 mm
Innra mál
7.600 × 4.600 mm
Innra gólfflatarmál
34,96 m²
Innra rúmmál
105,9 m³
Lofthæð, lág og há hlið
2.940 og 3.119 mm
Þakhalli
3,9 % · 1:26 · 2,2°
Heildarhæð yfir plötu
3.555 til 3.755 mm
Gluggaveggur
3.400 × 2.300 mm · þrír flekar
Steypt plata
8.300 × 5.300 × 150 mm
Steypa í plötu
6,60 m³ · 43,99 m²
Einangrun
200 mm steinull í þaki, vegg og gólfi
Suite
11,35 × 5,15 m · 49,7 m² · sjá Suite-síðuna
Rýmið

Þess vegna er húsið þessi stærð.

Sveifla með dræver þarf lofthæð yfir þremur metrum. Örvhentur og rétthentur þurfa sömu breidd. Skjár, bolti, ratsjá og setusvæði þurfa dýpt. Hver tala hér er svar við kröfu innigolfs.

opnanlegur fleki út, læsanlegur GOLFHERMIR 34,96 m² · 7.600 × 4.600 mm lofthæð 2.940 mm við lága hlið · 3.119 mm við háa hlið ÞAKHALLI 3,9 % · 1:26 · 2,2° HÁ BRÚN +3,755 LÁG BRÚN +3,555 A A B B 8.300 8.150 8.000 7.600 5.300 5.150 5.000 4.600 800 3.400 800
KrafaÞetta húsBílskúr
Lofthæð undir sveiflu3,12 m við háa hlið2,3 til 2,5 m
Breidd fyrir báðar hendur4,60 m2,8 til 3,2 m
Dýpt: tjald, bolti, radar, setusvæði7,60 m5,5 til 6,0 m
Höggtjald sem kemst fyrirallt að 4,2 × 2,6 m3,0 × 2,2 m
Birtustýringeinn gluggaveggur, myrkvun fylgirbílskúrshurð og gluggar
4,3 m
Skjábreidd sem kemst fyrir
2
Hendur · miðjuð motta
2,5 m
Setusvæði aftan við slag
Í þrívídd · taktu það í sundur

Sleðinn lyftir lögunum hverju af öðru: undirstaða, dregarar, gólfpakki, veggir, klæðning, þak og þakstál. Grind sýnir stoðir, sperrur og gólfbita. Undir sýnir undirstöðuna.

Hleð líkani
Dragðu til að snúa
Lagskiptingin

Þak, veggur og gólf, lag fyrir lag.

Utan frá og inn: klæðning, loftað bil, vindvörn, 150 mm grind með steinull, 50 mm þverlekt með steinull, rakavörn hitamegin, innri klæðning. Sama hugsun í öllum þremur byggingarhlutum.

Hleð lögum
1 Þakstál „Classic“, svart, standandi fals 0,5 mm 2 Undirborð langsum 100 × 25 mm 25 mm 3 Lóðrétt lektun, loftað bil 25 mm 4 Vindvarnarlag 130 g/m² himna 5 Þakgrind 150 mm, steinull 150 mm á milli 150 mm 6 Innri þverlekt 50 mm, steinull 50 mm 50 mm 7 Rakavarnarlag, hitamegin himna 8 Innri klæðning lofts ‡ 20 mm 270 mm

Þak

270 mm
U 0,095W/m²K · hámark 0,2

53 % svigrúm undir hámarki byggingarreglugerðar nr. 112/2012, töflu 13.01.

  1. Þakstál „Classic“, svart, standandi fals0,5 mm
  2. Undirborð langsum 100 × 25 mm25 mm
  3. Lóðrétt lektun, loftað bil25 mm
  4. Vindvarnarlag 130 g/m²himna
  5. Þakgrind 150 mm, steinull á milli150 mm
  6. Innri þverlekt 50 mm, steinull50 mm
  7. Rakavarnarlag, hitameginhimna
  8. Innri klæðning lofts20 mm
1 Timburklæðning, ytri 25 mm 2 Lárétt loftunarlekt, loftað bil 25 mm 3 Lóðrétt lektun 25 mm 4 Vindvarnarlag 130 g/m² himna 5 Burðargrind 150 mm, steinull 150 mm á milli 150 mm 6 Innri þverlekt 50 mm, steinull 50 mm 50 mm 7 Rakavarnarlag, hitamegin himna 8 Innri klæðning ‡ 20 mm 295 mm

Útveggur

295 mm
U 0,21W/m²K · hámark 0,4

48 % svigrúm undir hámarki byggingarreglugerðar nr. 112/2012, töflu 13.01.

  1. Stálklæðning, standandi fals25 mm
  2. Lárétt loftunarlekt, loftað bil25 mm
  3. Lóðrétt lektun25 mm
  4. Vindvarnarlag 130 g/m²himna
  5. Burðargrind 150 mm, steinull á milli150 mm
  6. Innri þverlekt 50 mm, steinull50 mm
  7. Rakavarnarlag, hitameginhimna
  8. Innri klæðning20 mm
1 Gólfefni ‡ himna 2 Efri þverlekt 50 mm, steinull 50 mm 50 mm 3 Gólfgrind 150 mm, steinull 150 mm á milli 150 mm 4 Sementsbundin plata 5 mm 5 Botnbiti 100 × 150 mm, hvílir á plötu 150 mm 355 mm

Gólf

355 mm
U 0,23W/m²K · hámark 0,3

23 % svigrúm undir hámarki byggingarreglugerðar nr. 112/2012, töflu 13.01.

  1. Gólfefnieftir pakka
  2. Efri þverlekt 50 mm, steinull50 mm
  3. Gólfgrind 150 mm, steinull á milli150 mm
  4. Sementsbundin plata5 mm
  5. Botnbiti 100 × 150 mm, hvílir á plötu150 mm

U-gildin eru úr orkulíkani framleiðandans, reiknuðu eftir litháískum staðli STR 2.01.02:2016 og bornu saman við íslensk hámarksgildi. Það er ekki íslensk orkuúttekt, og endanlegt loftþéttleikagildi ræðst af framkvæmd.

Orka og hitun

Orkuflokkur B. Um 45 kílóvattstundir á fermetra í hitun.

Loft í loft varmadæla með SCOP ≥ 3,0 hitar og kælir; rafvarmamottur í gólfi til viðbótar. Rafmagnsvatnshitari, 80 til 100 lítrar, óháður varmadælunni. Náttúruleg loftræsting um loftrásir og glugga ásamt rafmagnsviftu. Varmaendurvinnslueining er valkostur.

B
Orkuflokkur
~45
kWh/m²·ár · hitun
~80
kWh/m²·ár · raforka alls
~155
kWh/m²·ár · frumorka · krafa 186,91
0,29
C1 · krafa undir 0,30
~0,60
n50 · loftskipti á klst.
Hvað þýðir þetta fyrir 35 fermetra

Um 45 kWh/m² í hitun og um 80 kWh/m² í raforku alls eru samkvæmt líkaninu um 1.600 og 2.800 kílóvattstundir á ári fyrir 35 m² hús, kæling, neysluvatn og lýsing meðtalin. Varmadælan með SCOP að lágmarki 3,0 skilar hverri kílóvattstund af rafmagni sem þremur af varma; rafvarmamotturnar í gólfinu eru viðbót fyrir kaldar nætur.

Loftþéttleiki n50 um 0,60 loftskipti á klukkustund er staðfestur með þrýstiprófi eftir uppsetningu. Loftræsting er náttúruleg með rafmagnsviftu; varmaendurvinnslueining er valkostur í stillivélinni og lækkar varmatapið um loftræstingu.

Gildi merkt ~ eru áætluð í orkulíkani framleiðandans (STR 2.01.02:2016) fyrir þetta hús. Kröfurnar í töflunni eru litháískar; íslensk orkuúttekt er gerð af hönnuði í leyfisferlinu.

Kuldabrýr · Ψ í W/(m·K)

Reiknaðir hámarksstuðlar í samskeytum byggingarhluta. Lægra gildi er minna varmatap um samskeytin.

Undirstaða og útveggur
+0,15
Gluggi og veggur
+0,02
Gluggi og undirstaða
+0,08
Hurð og veggur
+0,10
Hurð og undirstaða
+0,25
Þak og veggur, ytra horn
+0,05
Þak og veggur, innra horn
+0,15
Ytri horn hússins
+0,00
Gler og hurðir

Þrefalt gler í álprófílum.

UAB „Stiklita“, Kaunas. Álprófílakerfi YAWAL TM77N_HI+, ál EN AW-6060 T66, þrefalt gler, tvö loftbil, tvö valgler, Ug ≤ 0,5. Loftgegndræpi flokkur 4 (EN 12207), vatnsþéttleiki gluggar E1650 · hurðir E900 (EN 12208), vindálagsþol 2400 Pa (EN 13116), styrkur gluggar fl. 4 · hurðir fl. 5 (EN 12400).

0,80
U gluggar · hámark 2,0
1,20
U hurðir · hámark 3,0
7,82 m²
Gluggaveggur · 22 % af gólffleti
3 flekar
Einn opnanlegur, læsanlegur
gluggaveggur 3.400 × 2.300 +3,655 +0,355 GÓLF ±0,000 PLATA 3.300 3.030 7.600 8.150 8.300
Snið B-B · gluggaveggur 3.400 × 2.300
Plata og pallur

Það sem þarf að vera klárt á lóðinni.

Steypt plata 8,3 × 5,3 × 0,15 m, húsið miðjað, plötubrún 75 mm út fyrir klæðningu. Sjö dregarar 100 × 150 mm hvíla á plötunni og eru festir í báða enda. Járnabinding, undirlag og frostvörn eftir burðarþolshönnuði.

STEYPT PLATA 8.300 × 5.300 × 150 mm 43,99 m² · 6,60 m³ steypa · ummál 27,2 m húsið miðjað · plötubrún 150 mm út fyrir grind · 75 mm út fyrir klæðningu 7 botnbitar 100 × 150 mm hvíla á plötu · festing við báða enda hvers bita 450 1.233 1.233 1.233 1.233 1.233 1.233 450 75 75 8.000 75 75 8.300 75 75 5.000 75 75 5.300
loftræst bil 150 mm op í kanti skv. hönnuði múrbolti og vinkill ‡ gerð og bil skv. hönnuði +0,355 GÓLF ±0,000 PLATA 150 75 75 200 355 dropkantur út fyrir plötu
Steypt plata

8,3 × 5,3 m, 150 mm, eftir okkar forskrift. Um 6,9 m³ steypa með rýrnun. Hún sést aldrei þegar pallurinn er kominn.

Pallur í flútti við hurð

Gólf hússins er 355 mm yfir plötu. Pallurinn liggur í þeirri hæð, framan við glerið og meðfram hliðunum, með kantborði sem felur plötuna.

Rafmagnsheimtaug og aðkoma

Heimtaug að húsi og tafla; raflagnir innanhúss koma frá verksmiðju. Húsið er híft í einu lagi, svo krani þarf að komast að.

Festingin, skref fyrir skref

Fimm skref, tuttugu og átta vinklar.

Lýsing byggingarstjóra á því hvernig húsið er fest við plötuna og hvað þarf í það. Allt fæst í byggingavöruverslun; ekkert er sérpantað.

  1. 01

    Húsið kemur á sjö dregurum 100 × 150 mm sem liggja þvert á lengdina, með 1.233 mm millibili.

  2. 02

    Dregararnir setjast ekki beint á plötuna: 5 mm plastkubbar undir bitana með 600 mm millibili, svo þeir liggi aldrei í vatni.

  3. 03

    Vinklar beggja vegna við hvern dregara, í báðum endum. Pappi undir hvern vinkil til að slíta hann frá steypunni.

  4. 04

    Múrbolti 10 × 120 mm, einn í hvern vinkil. Allir vinklar boltaðir niður áður en húsið er híft á, ekki fullhertir fyrr en húsið er komið niður.

  5. 05

    Vinklar festir í dregara með 4 × 40 mm skrúfum eða kambsaumi, sex stykki í hvern vinkil.

Efnislisti fyrir eitt hús
HluturGerðMagn
VinkillBMF 105 × 105 × 3 × 90 mm28 stk.
SkrúfaBMF 5,0 × 40 mm, ruspert, TX20168 stk.
Kambsaumur4 × 40 mm, í stað skrúfa168 stk.
MúrboltiA4 10 × 120 mm28 stk.
MillileggQuick-mix plastkubbar, 5 mmum 100 stk.
Pappiundir vinkla1 rúlla

Fjöldi miðast við sjö dregara með tveimur vinklum í hvorum enda. Skrúfa eða kambsaumur, ekki hvort tveggja.

Undirstöðukostir

Plata, súlur eða skrúfstaurar. Lóðin ræður.

Sýningarhúsið stendur á steyptri plötu. Húsið er samt jafn ánægt á steyptum súlum með límtrésbitum eða á skrúfstaurum; dregararnir eru þeir sömu og festingin sambærileg. Allar þrjár leiðirnar sjást í þrívíddinni.

P

Steypt plata

8,3 × 5,3 m, 150 mm, járnabundin, á þjöppuðum malarpúða með frostvörn. Dregararnir hvíla á plötunni og eru festir með vinklum og múrboltum. Einfaldast og stífast, pallurinn felur hana.

Hentar: Þéttbýlislóðir, flatar lóðir, þar sem steypubíll kemst að.

Sjá í þrívídd →
S

Steyptar súlur og dregarar

Sex til átta sökkulhólkar niður fyrir frost, límtrésbitar 90 × 315 mm langsum á þeim, og dregarar hússins þvert á bitana. Loftað bil undir gólfi.

Hentar: Hallandi lóðir, sumarhúsalönd, þar sem minnst rask á landi er kostur.

Sjá í þrívídd →
K

Skrúfstaurar

Stálstaurar skrúfaðir niður í jarðveg, stálbitar ofan á, húsið á bitunum. Enginn gröftur, engin steypa, lagt á einum degi og má taka upp aftur.

Hentar: Mjúkur jarðvegur, tímabundin staðsetning, þar sem steypa er óhentug.

Sjá í þrívídd →
Raflagnir og hitun

Rafmagnið er þegar hugsað fyrir golf.

Tenglar eftir teikningu framleiðanda, þar á meðal tveir í lofti fyrir skjávarpa. Loft í loft varmadæla og rafvarmamottur í gólfi.

2 tenglarlangveggur, 2,4 m frá gluggavegg
h 1.700
2 tenglarlangveggur, 0,6 m frá gluggavegg
h 200
2 tenglarlangveggur, 4,0 m frá bakstafni
h 200
2 tenglar í lofti4,3 m frá bakstafni, 2,3 m frá vegg · skjávarpi
loft
2 tenglar · h 1.700 2 tenglar · h 200 2 tenglar · h 200 2 tenglar í lofti 2.400 600 4.000 4.300 2.300 8.150 5.150
Einangrun og rakavörn í horni hússins
Timburgrindin hjúpuð vindvörn

Húsið á Smalaholti er fyrsta eintakið og sýningarhúsið. Þar er hver tími, hver króna og hvert desíbel mælt áður en næsta hús er selt.

Allar teikningar
Suite

Sama golfrými, þrír metrar af húsi til viðbótar.

Skelin lengd um 3,2 m við gluggavegginn: anddyri, setustofa og baðherbergi 1,5 × 2,2 m í horninu. Golfrýmið, tjaldið og glerið eru nákvæmlega eins.

Myndbönd

Kynningin og verksmiðjan.

Kynningarmyndin sýnir húsið úti og inni. Hitt er upprunalega myndbandið frá MM Statyba: grindin, steinullin og rýmið áður en klætt var.

Kynningarmyndin54 sekúndur · húsið úti og inni, sveiflan og setusvæðið0:54
Úr verksmiðjunni í KaunasMM Statyba sýnir grindina, steinullina og rýmið áður en klætt var0:59